Spilverk II

Akrýl á striga – 50×50 cm. Rammað í svartan flotramma. Til sölu.

Fyrir mér eru T Ö F R A R í tónlist. Í henni felst upplyfting fyrir sálina/sinnið og hún er að mínu mati risastór gjöf til mannkyns. Hér er á ferðinni tjáning á gleði, upplyftingu og þakklæti. Þarna eru ýmis form sem sýna hreyfingu upp á við, hátindar, tákn, bylgjur og litir sem leika við augun.