Vorið 2025 flutti ég í Laugarás sem er einn skjólsælasti staður á Íslandi. Nú mála ég eins og vindurinn í kyrrðinni í fallegu sveitaumhverfi.
Sumarið 2025 setti ég upp tvær örsýningar í miðbæ Reykjavíkur. Í kjölfar seinni sýningarinnar var mér boðið pláss í Gallerí ART67 sem er rekið í samstarfi af hópi listakvenna. Ég tók því og er núna með nokkur verk til sýnis og sölu í ART67 á Laugavegi 61.
