![](https://mli98ul53v8p.i.optimole.com/W5bzmwk-B7qUICBQ/w:368/h:255/q:mauto/f:avif/https://i0.wp.com/andreaolafs.is/wp-content/uploads/2023/09/Andrea-Olafs-in-Gallery-Grasteinn.jpg?resize=368%2C255&quality=99&ssl=1)
Sýningin “Hugarheimur” var formlega opnuð á Menningarnótt 2023. Sýningin er sú fjórða í sýningarröðinni “Listin að lifa” sem hófst á Menningarnótt árið 2022 sem markaði nýtt upphaf fyrir listamanninn. Stöðugur straumur af fólki var á sýninguna fram eftir kvöldi og örtröð myndaðist á opnun, en líklega voru það um fjögur hundruð manns sem sóttu sýninguna þennan fyrsta sýningardag.
Sýningin stendur til og með 12. september.