Fyrsta einkasýningin á heimaslóðum

Andrea Olafs

Sköpunargleðinni var deilt á æskustöðvunum í ár með uppsetningu einkasýningarinnar „Þeir fiska sem róa“ á Húsavík á Mærudögum þann 27. júlí 2023. Sýningin var sú þriðja í sýningarröð sem kallast „Listin að lifa“ sem fór af stað í tilefni hálfrar aldar afmælis listamannsins í ágúst síðast liðnum. Sýningin var mjög vel sótt og um helmingur verkanna af sýningunni rötuðu inn á heimili Húsvíkinga.