Listaverkauppboð til styrktar Kvennaathvarfinu

Andrea Ólafs lagði fram tvö verk í listaverkauppboð til styrktar Kvennaathvarfinu sem hófst á heimasíðu Gallerí Foldar þann 29. október.

Verkin verða til sýnis í sýningarrými Foldar á Rauðarárstíg. Góðgerðarkvöld fer fram þar þann 3. nóvember. 

Safnað er fyrir stærra og hentugra húsnæði fyrir Kvennaathvarfið en yfir 700 konur leita þangað árlega í leit að ráðgjöf og öruggu skjóli.