Spilverk II

Akrýl á striga – 50×50 cm. Rammað í svartan flotramma. Til sölu. Fyrir mér eru T Ö F R A R í tónlist. Í henni felst upplyfting fyrir sálina/sinnið og hún er að mínu mati risastór gjöf til mannkyns. Hér er á ferðinni tjáning á gleði, upplyftingu og þakklæti. Þarna eru ýmis form sem sýna…

Read more "Spilverk II"

Spilverk I – selt

Akrýl á striga – 50×50 cm. Verkið er selt. Verkið er tjáning á gleði og þakklæti sem fylgja því að stilla sig inn á bylgjulengd þeirra töfra sem búa í tónlist. Form, litir, bylgjur og tilvísanir í tónlist mynda leik og gleði sem listamaðurinn upplifir í gegnum tónlist.

Read more "Spilverk I – selt"

Taktu flugið

Akrýl á striga – 100×70 cm. Indjáninn varðveitir fornar lækningahefðir með DNA minni. Þrumufuglinn (e. Thunderbird) og nútímatæknin tengja saman tvo heima.

Read more "Taktu flugið"

Mánabaugur – selt

100×70 cm – Akrýl á striga – Eftirprent fáanleg Þetta verk fæddist mjög hratt og örugglega með hugaróma lagsins Moonshadow. Töfrandi tónlist á það til að kveikja hugmyndir. Hinn egypski verndarhringur (e. shen ring) er táknrænn fyrir hið eilífa sköpunarflæði sem hefur ekkert upphaf og engan endi.

Read more "Mánabaugur – selt"

Geislabaugur – selt

100×70 cm – Akrýl á striga – Eftirprent fáanleg Í glaðbeitturm og góðum gír skapaði ég Geislabauginn sem seldist á sýningu minni á Menningarnótt í ágúst 2023. Alheimurinn hefur ekkert upphaf og engan endi. Hann er eilífur. Það getur verið örlítið snúið fyrir mannshugann að ná utan um hugmyndir um eilífðina, hvað þá að skilja…

Read more "Geislabaugur – selt"

Fyrsta einkasýningin á heimaslóðum

Sköpunargleðinni var deilt á æskustöðvunum í ár með uppsetningu einkasýningarinnar „Þeir fiska sem róa“ á Húsavík á Mærudögum þann 27. júlí 2023. Sýningin var sú þriðja í sýningarröð sem kallast „Listin að lifa“ sem fór af stað í tilefni hálfrar aldar afmælis listamannsins í ágúst síðast liðnum. Sýningin var mjög vel sótt og um helmingur verkanna af sýningunni…

Read more "Fyrsta einkasýningin á heimaslóðum"