Tíðarandi I

100×70 cm – Akrýl á striga – Til sölu.

Verkið er unnið á haustmánuðum 2022 og hefur að geyma alls kyns tíðni og bylgjulengdir. Hver og ein mannvera stillir sig inn á ákveðna bylgjulengd og getur það farið eftir tíðarandanum í samfélaginu hverju sinni, eða innri tíðaranda í takt við hið kosmíska flæði.